Stefán er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hann lauk LL.M. námi í viðskiptarétti við Cambridge University árið 2008. Stefán hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2005 og er aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík, en þar kennir hann meðal annars réttarfar og kröfurétt. Þá hefur hann gegnt trúnaðarstörfum fyrir Lögmannafélag Íslands og er í dag varaformaður Lögmannafélags Íslands.
Stefán hefur flutt fjölda mála meðal annars á sviði viðskiptaréttar, þ.m.t. fordæmisgefandi mál, fyrir íslenskum dómstólum og hefur einnig flutt mál fyrir EFTA-dómstólnum ásamt því að hafa verið kvaddur sem sérfræðivitni um íslenskan rétt í þrígang fyrir enskum dómstólum og einu sinni fyrir alþjóðlegum gerðardómi.
Í umsögnum alþjóðlegra matsfyrirtækja, þ. á m. Chambers og Legal 500, hefur Stefáns ítrekað verið getið á lista yfir þá lögmenn sem sérstaklega er mælt með.