IS EN

Verktakaréttur

Lögmenn Juris hafa margra ára reynslu af því að veita viðskiptavinum ráðgjöf á öllum stigum verkframkvæmda. Vinna okkar á þessu sviði felur í sér alhliða ráðgjöf allt frá fyrstu stigum við öflun nauðsynlegra leyfa og aðra undirbúningsvinnu, fram að sölu eða leigu viðkomandi framkvæmda að þeim loknum.

 

Við höfum reynslu í að veita ráðgjöf í tengslum við margvíslegar verkframkvæmdir. Sem eina lögmannsstofan á Íslandi þar sem saman starfa íslenskir og enskir lögmenn erum við sérfræðingar í að veita ráðgjöf í alþjóðlegum viðskiptum, og erum fær um að aðstoða viðskiptavini með þau sérstöku álitaefni sem geta falist í verkframkvæmdum á Íslandi. Við búum yfir reynslu af því að vinna með bæði íslenska staðla (ÍST-30) og alþjóðleg samningsform, þ.á m. FIDIC.

 

Einnig veitum við viðskiptavinum okkar reglulega ráðgjöf varðandi skipulags- og byggingarmál í tengslum við eignir þeirra.

 

Margir af lögmönnum Juris eru einnig sérfræðingar á sviði banka- og fjármálamarkaða, og við höfum reglulega veitt viðskiptavinum okkar ráðgjöf varðandi fjármögnunarhluta verkframkvæmda. Fyrir frekari upplýsingar, sjá banka- og fjármálamarkaðir.

 

Sérfræðingar okkar í málflutningi og úrlausn ágreiningsmála eru leiðandi á því sviði á Íslandi, og eru færir um að ráðleggja viðskiptavinum um allan ágreining í tengslum við verkframkvæmdir, hvort sem er fyrir íslenskum dómstólum, stjórnvöldum, gerðardómum eða EFTA-dómstólnum. Sjá nánar málflutningur og úrlausn ágreiningsmála.